4. fundur
efnahags- og viðskiptanefndar á 144. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 24. september 2014 kl. 09:32


Mættir:

Frosti Sigurjónsson (FSigurj) formaður, kl. 09:32
Pétur H. Blöndal (PHB) 1. varaformaður, kl. 09:32
Willum Þór Þórsson (WÞÞ) 2. varaformaður, kl. 09:32
Árni Páll Árnason (ÁPÁ), kl. 09:41
Guðmundur Steingrímsson (GStein), kl. 09:37
Jón Þór Ólafsson (JÞÓ), kl. 09:32
Katrín Jakobsdóttir (KJak) fyrir Steingrím J. Sigfússon (SJS), kl. 09:32
Líneik Anna Sævarsdóttir (LínS), kl. 09:32
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK), kl. 09:32
Vilhjálmur Bjarnason (VilB), kl. 09:32

Pétur H. Blöndal vék af fundi kl. 11:02. Willum Þór Þórsson vék af fundi kl. 11:34.

Nefndarritari: Benedikt S. Benediktsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:32
Nefndin samþykkti fundargerðir 2. og 3. fundar.

2) 2. mál - virðisaukaskattur o.fl. Kl. 09:33
Á fund nefndarinnar komu Elín Guðjónsdóttir, Fjóla Agnarsdóttir, Guðrún Þorleifsdóttir, Maríanna Jónasdóttir og Ingibjörg Helga Helgadóttir frá fjármála- og efnahagsráðuneytinu og Marinó Melsteð og Rósmundur Guðnason frá Hagstofu Íslands. Fulltrúar fjármálaráðuneytisins kynntu nefndinni þingmálið og svöruðu spurningum nefndarmanna. Fulltrúar Hagstofu Íslands svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 3. mál - ýmsar forsendur fjárlagafrumvarps 2015 Kl. 11:56
Umfjöllum um dagskrárliðinn var frestað.

4) Önnur mál Kl. 11:57
Nefndin ræddi hugmyndir að dagskrá næstu funda.
Fleira var ekki gert á fundi nefndarinnar.

Fundi slitið kl. 11:57